Lárus !
16.10.2007 14:12:35 / rakel

Er það virkilega?

Líkar?

Það er ekki í fá skipti sem maður er spurður hvort ég og Linda Björk séum systur, ekki það að það sé slæmt langt í frá. Það er bara svo ótrúlega oft sem við heyrum ó ég hélt einu sinni að þið væruð systur !:)

Erum við líkar?

Erum við með alveg eins húmor?

Erum við með svipaðan persónuleika?

Hvað er það?

Endilega kommentið vil fá svör;)

 

>-Rakel kveður að sinni þanga til næst!-<


» 10 hafa sagt sína skoðun

15.10.2007 10:00:47 / linda

Breytingar..

Heii stelpur !

Til þess að hafa þessa síðu flottari, þá bjó ég til smá dót.. ég veit ekki hvað ég á að kalla það en skrollið bara neðst á síðuna og þá eigiði að sjá það ;) Svo breytti ég lika manneskju vikunar, og þar sem hún átti afmæli um daginn varð ég svona að hafa hana, ef það er í lagi ykkar vegna ;)

Þið breytið ef þið eruð ósáttar þá breytið bara, nó problemo ;D

 

annars ætla ég ekkert að blogga, ég ætlaði bara að láta vita af þessu nýja dóti :)

-linda


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 14:18:55 / rakel

Og það er ég !

Já sæl og blessuð elskurnar mínar og það er komin árlegur blogg tími hjá Rakel Bryndísi Gísladóttur!

 

Það er ekki það skemmtiegasta í heimi að blogga:) því aldrey veit ég hvað ég á að segja svo merkilegt er það:) en helgin var hin skársta og hluta til tekin með ró ekki veitir af þar sem ég er einhvern vegin alltaf að gera eitthvað annað en það sem ég ætlaði mér, einhvernvegin er ég viss um að þið kannist við það:)?

Já á föstudaginn var ég bara heima og passaði Brynjar Snæ og strákarnir voru heima, ég eldaði handa þeim pitsu og þegar Palli pabbi Brynjars kom að ná í hann fór ég út með Lindu og Guðmanni við fórum til Ástu frænku sem var á húsafelli í bústað fór með friends seríru handa henni og þar voru amma, afi og Ella ''amma'' tengda mamma Ástu :) stoppuðum þar pínu stund en á leiðinni var nú frekar draugalegt úff..! við linda vorum með ýmundunaraflið í hæsta stigi og þá öskraði Guðmann svo við myndum bregða og það tókst:/ en svo á leiðinni heim var hann frekar stiltur:)!

Laugardaginn svaf ég bara út og þegar við vöknuðum fórum við í Bakaríið ég, mamma, kári, rúnar og guðmann, og kýktum svo á hana lindu litlu í hagkaup þegar það var búið fórum við í bónus og ég og guðmann fórum með einhvern disk fyrir pabba útá skaga.  Um kvöldið fór hann heim ég gerði mig tilbúna og linda kom og náði í mig fórum á shell og hún át:D fórum á skagan og náðum í guðmann, kýktum í partý til Þóreyar og svo rúntuðum við eitthvað og í annað partý hjá Stínu hans jóa:) stoppuðum ekki lengi þar. Svo fórum við bara heim:)

Sunnudagurinn hann var bara eins og hann var frekar afslappandi:)

Kári litli bróðir minn á víst afmæli í dag :) orðin 9 ára gamall karl anginn:)

til hamingju með daginn sæti minn;);*

 

Komið gott:D ásta það er komið að þér þá meina ég ekki byrja bara og klára ekki kláraðu bloggin þín sæta:D;*


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.10.2007 18:06:15 / linda

;O

Steelpur ! hvernig væri það að einhver önnur myndi blogga en bara ég ?

mér finndist það ágæt sko..

jæja. ég ætla bara að haafa þetta stutt, svo að síðan drepist ekki :/ og það viljum við ekki, neeeiii ..

núú, um helgina, þá er það bara að vinna, kaaaannski að kikja á oktoberfest á skaganum.. jáá ekkert meira ..

æj, voða leiðinlegt blogg, ég hef bara EKKERT að segja ..

bara commenta endilega :)

 

-linda


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.09.2007 20:48:57 / linda

neineineinei

Ekki vil ég að síðan deyji. svo ég ætla að vera dugleg og blogga !:D

núú, aaallveg að koma helgi, hlakka voða til, bara til að fá að sofa út, er búin að vera ósköp þreytt þessa viku. Tja, ball á föstud. oog ég ætla að mæta, bara veit ekki alveg með hverjum ég ætla að fara, engin rakel né ásta :O  us, ég finn einhvern, er það ekki ;) ?

Jáá, ég var næstum því farin útaf í morgun, þegar ég var á leiðinni í skólann. Sko, var að keyra undir hafnafjallinu, og þar er náttlega aaalltaf rok, en núna var eitthvað voðalega mikið. allavegana, var að keyra, og svo kemur þessi ógurlega mikill vindur og ég næ ekki  stjórn á bílnum, og fer smá útaf, alveg að stikunum eða þar, svo slæst eitthvað í bílinn og ég næ rétt svo að beygja inná veginn aftur. Smá rispur á bílnum, sjást ekki það mikið, maður verður að líta vel. Var nú bara heppin þarna ;) Talandi um keyrslur og bíla. Pabbi gamli var orðin svo þreyttur á tuðinu í mér að hann skellti sér í það að setja græjunar í bílinn minn. Og núna er Gilitrutt orðin fín :D Búið að laga öll þau smáatriði sem voru að ;P Oog auðvitað skundaði ég á rúntinn til að testa græjurnar. Ég er sátt :)

Ég ætlaði nú ekki að hafa þetta langt, eiginlega bara svona til að bjarga síðunni frá hættu á því að deyja út. Og ekki viljum við það, neeeiii ;)

Svo eftir helgi mun ég auðvitað koma með 1-2 myndir, neee slatta af myndum síðan af ballinu,, sem verður á morgun ;) Svo ég held að þessi síða sé ekki að fara deyja ;)

en þar til næst (ef einhver nennir þá að blogga) þá hafið það gott ;*

-linda.


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.09.2007 16:19:42 / linda

=D

Nú jæja, það nennir engin að blogga svo ég tek það bara að mér ;)

núú, helgin loksins gengin í garð :)  voðalega er ég feginn, samt var vikan fljót að líða :D

ásta elskan beilaði rvk ferðinni sem við ætluðum í dag, því kellan er að fara syngja einhversstaðar.. iss það er nú í lagi ;) Planið í kvöld hjá mér er að hitta hana Ölmu, hef ekki séð hana síðan ég veit ekki hvenær :o  svoo við ætlum að taka einn eða tvo rúnta á kagganum góða, er eimitt að fara bóna hann á eftir ;)

Gilitrutt ;D

jújú, ég hef gefið bílnum nafn, Gilitrutt, flott ha :D?

en ég ætla eiginlega ekki að hafa þetta lengra..

en eins og þið sjáið þá erum við komnar með banner og svo breyta síðunni sjálfri ;) Líka búnar að setja Kodak Moment en eigum eftir að bæta inná, svo stay tuned ;) Allt að koma hjá Lárusi ;)

en hafið það gott um helgina kátu félagar, ég er farin að bóna bílinn ;) ;*

-linda :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.09.2007 19:43:19 / rakel

Hæhæ:)

Hæ kæru sveinar:) við erum komnar á stjá s.s. Rakell og Lindi.. og getið nú tvisvar sinnum litlu spánverjar hvar við erum:)? jæja þið eruð svo afskaplega lengi að svara að við skulum bara koma þessu frá okkur.. og við erum sko staddar á aðal placeinu HOFSÓS CITY!!:) Já dagurinn í dag leið ósköp hægt ætlaði aldrey að verða búinn þessi bjánalegi skóladagur þó stuttur væri. Tja.. Við skutluðumst heim og vorum lengur að taka okkur til en planað var þá er ég aðalega að tala um RAKEL þar sem hún átti erfitt með að hugsa um hvort hún væri að koma eða fara í þessu lífi, en loksins lokaði hún töskunni dreif sig út í Pétur Pan(bíllinn hennar!) og brunaði til að segja bless við mömmu sína þar á eftir tók hún kára með sér því hún átti að skutla honum til Almars aldrey þessu vant, en áður en hún gerði það fór hún að almenniheitast og keypti þennan líka fína blómvönd handa ömmu, svo ætlaði hún að vera almennileg við hann afa sinn líka en nei kellingin vissi ekki einu sinni hvað er uppáhalds brauðið hans hét og keypti vitlaust en keypti þó meðalið hans rétt(súkkulaði) jæja hættum þessum %$&/$ díteilum og höldum áfram náði í lindu þegar búið var að skila kútnum heilum og höldnum til vinar síns svo gekk þessi ferð eins og í sögu og komu óvænt ævintýri í ljós þ.e.s. Sáum banana manninn, pólverjar á svaka hössli, klikkaður maður í gleðivímu veifandi eins og hann hafi séð ömmu sína og svo keyrðum við næstu á fugl og Rakel hoppaði úr sætinu með lappirnar upp því henni brá svo mikið og linda sá vestmannaeyjar sem reyndust svo bara vera DRANGEY!:D jæja en við erum komnar heilar og húfar sjáumst hress og kát í næsta þætti;)

-Rakel pakel og linda kinda:)


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 17:13:48 / linda

nú jæja..

Góðan daginn kæru lesendur :)

Tja, ég hef fátt að segja, en einhver verður að lífga þetta blessuðu síðu upp ;)

Helgin;  júú hún var fín, reyndar vinnuhelgin mín, en það var ágætt, skemmdi ekkert fyrir meðan ég hafði ekkert plan fyrir þessa ;)

föstud; var tekin með stæl ! Rakel var ein heima svo við ákváðum að elda, og buðum Þorgerði og Hugrúnu Evu í mat, en hugrún var að vinna svoo hún kom ekki ;) Allavega seinna um kvöldið þá kom Sigurborg og fékk sér ís með okkur og kósýheit :P Svo var bara ákveðið að fara í bæinn í bíó, en þar sem við vorum svo seinar af stað að við misstum af bíóinu þannig að við fórum bara á Laugarveginn á rúntinn þar ;) Svo baara heim um nóttina ;)

flottar ha ;D?

laugard; núú ég vaknaði til að fara vinna kl 10 og var til 6, svoo fínt að vinna þarna ;) svo kom ég heim og fór á "10sek" rúntinn með rakel, því Guðmann var að koma til hennar, svoo þegar hann var komin skutlaði hún mér bara heim og ég fór í tölvuna, og eyddi kvöldinu við tölvuskjáinn, hafði eeekkkert að gera ! Breytti smá á síðunnu eins og sjá má, stelpur þið breytið bara ef þið eruð ekki sáttar ;)

sunnud; ég vaknaði 10 og fór í sturtu, þurfti að mæta í vinnu hálf 12 og til 6 :) Þegar vinnan var búin fór ég nú bara heim eitthvað að dandalast, klára að læra og svolleiðis :) Fór svo bara að sofa ;)

Í dag; vaknaði svo eeeelldhreeess eeeða þannig í morgun til að fara í blessaðan skólann.

En ég ætla bara ekkert að hafa þetta lengra, það er komið að einhverjum öðrum að blogga :)

bless,,

-linda ;*


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.09.2007 16:56:12 / linda

ekkert

Jæja, fyrst engin nennir að blogga þá ætla ég að blogga :D

Helgin var rooosa fín, busunin og busaballið á föstud. nenni nú varla að fara ítarlega í það ;) Og eins og þið sjáið þá eru myndirnar komnar inn, alveg fyrir löngu ;)  Laugard. fór ég í bæinn með rakel og guðmanni og við skelltum okkur á Astrópíu, mæli bókstaflega með henni, geðveikt góð !:D Svo á sunnud. þáááá tók ég mig til og þreif herbergið mitt, segið svo ekki að ég sé ekki dugleg ;)  ooog svo held að ég hafi farið bara á rúntinn með rakel, en ekki hvað :P ?

Svoo bara ný vika og skólinn tekur við, leitt :) næstu helgi þá gengur vinnan í garð ;D

Ég hef voða litið að segja.. svo ég held að ég láti þetta nægja :)

eitt vil ég segja, ásta marý mín, elsku rúsina, við bíðum öll spennt eftir að fá að sjá blogg frá þér :*

hef það ekki lengra, ein gömul af okkur þrem ;

krúttlegar ha ;D ?

vil sjá comment múslur ;*

-linda


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.09.2007 23:52:00 / linda

Nýjar myndir !

 

 Er búin að setja myndir síðan af busaballinu inná :D

endilega tékkið og kannski örfá comment ;$ ?

-linda


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.08.2007 17:33:52 / rakel

Verið velkomin:)

Kæru Hagamýs, endur og aðrir ágætir aðstandendur:)

 Ég vil byrja á því að kynna mig, Rakel Bryndís og er ein af þessum æðislegu stelpum sem eru með þessa frábæru síðu..svoldið ýkt hjá mér en hverju skiptir það svo sem:) En allavega þá vildi ég vera svoldið almennileg í mér og skelli einu léttsteiktu bloggi hér inn:) Jæja þetta verður víst ekki neitt svona hvað er ég búin að gera í dag blogg þar sem voðalítið skeður í lífi mínu heldur vil ég koma hugsunum hérna það sem ég hef verið að pæla undafarið:)

Ég er búin að vera að vinna á elliheimilinu núna í c.a. 3 mánuði og mér fynnst það alveg frábært sérstaklega allt fólkið þarna ótrúlegasta fólk í heimi og það var þarna kona sem sagði einu sinni við mig er lífið raunverulegt? er þetta ekki bara eitthvað leikrit þetta líf er svo ósköp furðulegt..lífið er eins og leikrit misskemmtilegt og alltaf getur komið leiðinlegir kaflar í þessu leikriti og líka góðir kaflar. Og vonandi endar þetta allt ágætlega:)

þetta blogg varð frekar glatað ég hugsði þetta allt öðruvísi:O en þetta verður að duga;)

Rakel Bryndís kveður að sinni:)

» 4 hafa sagt sína skoðun

24.08.2007 23:09:54 / linda

Fyrsta færslan..

Jújú, ég ætla að vera fyrst að blogga hérna, ég gaf mér það leyfi sjálf ;)

Ég veit ég veit, það er ekkert inná þessari síðu, en ég vona að stelpurnar verði duglega, og náttúrulega ég lika :)  Og það þýðir ekkert að láta mig um bloggið ;)

Allavegana, var að koma frá rakel, er búin að vera þar í allt kvöld og guðmann félagi lika ;) Það var rosa fínt.  Ákvað að koma snemma heim til að fara sofa á skikkalegum tima til að vakna í fyrramálið í vinnu.. júju ég er byrjuð að vinna niðri Hagkaup :) En það er allt annað mál. Í dag, þá var náttúrulega þessi skóli þarna, og svo bara komið heim snemma, eeelska föstudaga !=D og þá var bara snattast eitthvað ;)

Gærdagurinn fór bara í skólann og fór svo uppí sveit að ná í viktor og hitta ættingja mína þar.. þar sem ég hef verið að vísu voooða löt við að heimsækja.. :lol: eníveis, fór svo og náði í mömmu í vinnunna, já ég veit, er mikið í skutl og sækja driver ;) ooog svo fórum við viktor í vörutalningu hjá Hagkaup.. sem stóð til hálf 1, vorum lika dauuðþreytt eftir það.. svo keyrði ég bara heim, og einn óheppilegur hlutur gerðist ;/ og svo heim að sofa :P

HVERJIR ÆTLA Á BUSABALLIÐ & LJÓSANÓTT =D ?

ég ætla ! :D  comment takk  ;)  ooog svo er ég farin að sofa, góða nótt kæru lesendur ;*

[næst er komið að einhverjum öðrum, kem sko ekki með 2 færslur í röð !] ;)

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.08.2007 15:41:13 / lar-us

Ný síða =D

Hæhæ :)

eins og sjá má þá bjuggum við til nýja síðu :)

munum laga hana bráðlega, þegar við höfum tíma, og gera hana huggulega ;)

 

lár-us :*


» 0 hafa sagt sína skoðun


Lárus !

lindabjörk ;*

""

 

rakelbrynd&iacut

RSS tengill